Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ
Aðalskipulag Suðurnesjabæjar – Breyting á iðnaðarsvæði I5, I7 og strandsvæði Bergvík - Kynning tillögu á vinnslustigi.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 6. maí 2026 að kynna fyrirliggjandi vinnslutillögu að breyttu Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 skv. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Viðfangsefni aðalskipulagsbreytingar er að laga stefnu og ákvarðanir aðalskipulags að nýjum forsendum um uppbyggingu í Bergvík. Breytingin felst í uppfærðum skilmálum, auknu byggingarmagni fyrir iðnaðarsvæði, stækkun iðnaðarsvæðis I5 til austurs, niðurfellingu iðnaðarsvæðis I7 í Selvík og aðlögun strandsvæðis að þeirri breytingu, auk þess sem sett er inn tenging fyrir rafveitu/jarðstreng inn á iðnaðarsvæðið. Ekki er um að ræða breytingar á stefnumörkun aðalskipulagsins í neinum málaflokkum.
Aðalskipulagsbreytingin er unnin í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir Bergvík. Tilgangurinn með breytingunni er að uppfæra stefnu aðalskipulags Suðurnesjabæjar þannig að hún endurspegli þá framtíðarsýn sem lögð er til grundvallar í K64 hringrásariðngarði og þróun nærsvæðis Keflavíkurflugvallar. Með breytingunni er samræmi milli fyrirhugaðrar uppbyggingar í Bergvík og gildandi skipulagsáætlana sveitarfélagsins og nærliggjandi svæða.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 1040/2025.
Bergvík – heildarendurskoðun deiliskipulags - Kynning tillögu á vinnslustigi.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 6. maí 2026 að kynna fyrirliggjandi vinnslutillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Bergvík skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í Bergvík er gert ráð fyrir að skapist tækifæri til að byggja upp iðnaðar- og athafnasvæði sem hefur verkefnaheitið K64 Hringrásariðngarður. Deiliskipulagið er heildarendurskoðun á gildandi deiliskipulagi Iðnaðarlóðar við Berghóla (álver við Helguvík) frá 2008 m.s.br. sem fellur úr gildi við staðfestingu þessa deiliskipulags. Deiliskipulagið er unnið á vegum íslenska ríkisins/Kadeco í samráði við skipulagsyfirvöld Suðurnesjabæjar og Landhelgisgæslu Íslands.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir stærri og minni lóðum fyrir fjölbreytta starfsemi með áherslu að nýsköpun, grænan iðngarð, hringrásarhagkerfið og framleiðslu-, rannsóknar- og þróunarfyrirtæki. Ef fram kemur áhugi á starfsemi sem tengist sorpbrennslu eða eldsneyti fyrir orkuskipti þá er horft til norðurhluta svæðisins. Umhverfismál eru lykilatriði við undirbúning, hönnun, byggingu og rekstur iðnaðarstarfsemi á svæðinu. Grænar jarðvegsmanir eru við Garðskagaveg og grænir geirar með skjólbelti eru dregnir inn á iðnaðarsvæðið með megin aðkomugötunum; Helguvíkur- og Bergvíkurvegi. Gert er ráð fyrir stígum og slóðum meðfram strandlengjunni og á náttúruríku hverfisvernduðu svæði við Bergvötn.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 1042/2025.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is
Umsagnarfrestur er til og með 4. júní 2026.
Haldinn verður kynningarfundur um vinnslutillögurnar fimmtudaginn 21. maí kl. 17.00 í sal Gerðaskóla í Garði.
Jón Ben. Einarsson,
Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar